Laugalandi, 20. janúar 2014
Til foreldra og forráðamanna nemenda í 6. – 10. bekk.
Fyrirhuguð er “leikhúsferð með meiru” fimtudaginn 30. janúar nk.
Lagt verður af stað frá Laugalandi kl. 15:35 og haldið í Skautahöllina í Laugardal ( kr.1000 á barn). Þaðan á veitingarhúsið Hróa Hött þar sem við fáum okkur að borða (kr. 1500.- á barn). Við endum síðan í Þjóðleikhúsinu og horfum á leikritið Englar alheimsins en sýningin hefst kl. 19:30 – 21:50 og er aðgangseyrir kr. 2.600,-. Heildarfjárhæð er kr. Kr. 5.100.-
Munið snyrtilegur klæðnaður.
Áætluð heimkoma að Laugalandi er kl. 23:00
Bestu kveðjur, skólastjóri
___________________________________________________________________________