Sameiginlega árshátíðin
Sameiginleg árshátíð skólanna í Rangárvallasýslu auk skólanna á Klaustri og í Vík verður haldin á Hellu þann 10. apríl. Hátíðin hefst klukkan 20:00 og stendur 24:00. Lagt verður af stað frá Laugalandi kl 19:30 og skólabílar keyra svo heim að skemmtun lokinni. Nemendur í 7. – 10. bekk eru þá komnir í páskafrí.