Fimmtudaginn 22. maí verður umhverfisdagur hjá 5.-9. bekk, frá kl. 8:30 til 12:30.
Þann dag eru nemendur í 1. – 4. bekk ekki í skólanum.
Þá gróðursetjum við, hreinsum beð, þrífum glugga og berum á timbur svo eitthvað sé nefnt. Í hádeginu verður svo venju samkvæmt grillveisla. Nauðsynlegt er að nemendur komi í vinnufötum sem henta fyrir ofangreind verkefni.